![]() ![]() ![]() ![]() |
||
|
|
Glasgow yfirlýsing IFLA um bókasöfn, upplýsingaþjónustu og vitsmunalegt frelsiFundur í Glasgow í tilefni 75 ára afmælis stofnunar IFLA - Alþjóðlegra samtaka bókavarðafélaga og stofnana (International Federation of Library Associations and Institutions) kunngerir eftirfarandi: IFLA lýsir yfir þeim grundvallarrétti manna bæði til þess að hafa aðgang að upplýsingum og til að geta tjáð þær án nokkurra hamlana. IFLA og aðildarfélög þess um víða veröld styðja, verja og stuðla að vitsmunalegu frelsi eins og það er skilgreint í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Vitsmunalegt frelsi tekur til auðlegðar mannlegrar þekkingar, skoðana, skapandi hugsunar og vitsmunalegrar virkni. IFLA staðhæfir að fylgi við vitsmunalegt frelsi sé þungamiðja ábyrgðar starfsstétta bókasafna og upplýsingamiðstöðva um heim allan og komi fram í siðareglum starfsins og sé látið í ljósi í starfinu sjálfu. IFLA lýsir eftirfarandi yfir:
Í ljósi ofanritaðs hvetur IFLA bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar og starfsfólk þeirra til að styðja og efla grundvallaratriði vitsmunalegs frelsis og til að veita óhindraðan aðgang að upplýsingum. Yfirlýsingin var útbúin af IFLA/FAIFE, samþykkt af framkvæmdastjórn IFLA í Haag í Hollandi þann 27. mars 2002 og staðfest af fulltrúaráði IFLA í Glasgow í Skotlandi þann 19. ágúst 2002. IFLA - Alþjóðleg samtök bókavarðafélaga og stofnana voru stofnuð í Edinborg árið 1927. Aðildarfélög IFLA eru um 1.700 í 150 löndum um heim allan. FAIFE, sem stendur fyrir Free Access to Information and Freedom of Expression, er nefnd innan IFLA, sem stofnuð var formlega á IFLA ársþinginu í Kaupmannahöfn árið 1997. Skrifstofa FAIFE opnaði þar 1. júlí 1998. Um IFLA og starfsemi samtakanna má fræðast nánar á heimasíðu þeirra www.ifla.org og hjá FAIFE er heimasíðan www.ifla.org/faife/.(Þórdís T. Þórarinsdóttir þýddi) | |