International Federation of Library Associations
and Institutions (IFLA)
Yfirlýsing IFLA um bókasöfn
og vitsmunalegt frelsi
Yfirlýsing útbúin af IFLA/FAIFE og samþykkt af framkvæmdastjórn IFLA í Haag
í Hollandi þann 25. mars 1999.
Alarabia, Balgarski,
Bangla, Bosanski, Chaltibhasa, Dansk, Deutsch, English, Español, Farsi, Français, Hangul, Hrvatski, Italiano, Kartuli, Lietuviskai, Magyar, Nederlands, Nihongo, Norsk, Polski, Português, Russkij, Shqip, Srpski, Suomeksi, Svenska, Tagalog, Tamil, Türkçe, Viet, Zhongwen (simplified), Zhongwen (traditional)
IFLA (Alþjóðlegt samband bókasafna og stofnana) styður, ver og stuðlar að
vitsmunalegu frelsi eins og það er skilgreint í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna.
IFLA lýsir því yfir að allir menn eigi grundvallarrétt til aðgangs að
framsetningu þekkingar, skapandi hugsunar og vitsmunalegrar virkni, ennfremur til að
tjá skoðanir sínar opinberlega.
IFLA álítur að réttur til þekkingar og tjáningarfrelsi séu tvær mismunandi
hliðar sama grundvallar-lögmáls. Rétturinn til þekkingar er forsenda fyrir frjálsa
hugsun og samvisku. Frjáls hugsun og tjáningarfrelsi eru nauðsynleg skilyrði fyrir
frjálsan aðgang að upplýsingum.
IFLA staðhæfir að fylgi við vitsmunalegt frelsi sé þungamiðja ábyrgðar
starfstétta bókasafna og upplýsinga-miðstöðva.
IFLA hvetur þess vegna bókasöfn og starfsfólk bókasafna til að halda fast við
undirstöðuatriði vitsmunalegs frelsis, óhindrað aðgengi að upplýsingum og
tjáningarfrelsi, ennfremur að viðurkenna friðhelgi notenda bókasafna.
IFLA hvetur meðlimi sína til að efla með starfsemi sinni viðurkenningu og
framkvæmd ofangreindra grundvallaratriða. Með því að gera það, staðhæfir IFLA
að:
- Bókasöfn láti í té aðgang að upplýsingum, hugmyndum og skáldskap. Þau þjóni
sem lykill að þekkingu, hugsun og menningu.
- Bókasöfn láti í té mikilvægan stuðning við símenntun, sjálfstæði í
ákvarðanatöku og þróun menningar fyrir bæði einstaklinga og hópa.
- Bókasöfn leggi fram sinn skerf til vaxtar og viðgangs vitsmunalegu frelsi og
aðstoði við að tryggja grundvallar lýðræðislegt gildismat og almenn borgaraleg
réttindi.
- Bókasöfn beri bæði ábyrgð á að tryggja og auðvelda aðgang að skráðri
þekkingu og vitsmunalegri starfsemi. Í þessum tilgangi eigi bókasöfn að afla,
varðveita og gera aðgengilegar mismunandi tegundir efnis, sem endurspegli menningu og
fjölbreytileika þjóðfélagsins.
- Bókasöfn eigi að tryggja að fagleg sjónarmið en ekki stjórnmálaleg,
siðferðileg eða trúarleg viðhorf ráði við val og aðgengileika safngagna og
þjónustu.
- Bókasöfn eigi að afla, skipuleggja og dreifa upplýsingum á frjálsan hátt og vera
andvíg hvers konar ritskoðun.
- Bókasöfn eigi að gera safnkost, aðstöðu og þjónustu jafn aðgengileg fyrir alla
notendur. Engin mismunun ætti að vera vegna kynþáttar, trúarbragða, kyns, aldurs
eða annarra þátta.
- Bókasafnsnotendur muni eiga rétt á friðhelgi og nafnleynd. Bókaverðir og annað
starfsfólk bókasafna á ekki að láta uppi við þriðja aðila persónuupplýsingar
notenda eða gefa upp efnið sem þeir nota.
- Bókasöfn fjármögnuð af almannafé og sem almenningur hefur aðgang að eiga að
hafa grundvallar-atriði vitsmunalegs frelsis í heiðri.
- Bókavörðum og öðru starfsfólki í slíkum bókasöfnum er skylt að styðja við
ofangreind grund-vallar-atriði.
- Bókaverðir og annað fagfólk á bókasöfnum eiga að uppfylla ábyrgð sína bæði
gagnvart vinnu-veitanda sínum og notendum. Ef til árekstra kemur milli þessara þátta
skal skylda við notendur vega þyngra á metunum.
Þórdís T. Þórarinsdóttir þýddi úr ensku
|
IFLA/FAIFE Office
Birketinget 6, 6th floor, DK-2300 Copenhagen S, Denmark
Phone: +45(32)586066, ext. 532 - direct line: +(45)32341532
Fax: +45 32 84 02 01
E-mail: susanne.seidelin@ifla.org or sus@db.dk or faife@ifla.org |
|